Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í slóð
Beint í flýtileiðir
mynd09.png
seisei.is arrow Viðtöl og greinar arrow Hrossarækt arrow Seigur á sex fimmunum
Seigur á sex fimmunum
þriðjudagur, 14 apríl 2009
glymur_je.jpg

Glymur frá Innri-Skeljabrekku er einn mesti gæðingur í röðum stóðhesta. Það undirstrikaði hann rækilega á vel heppnaðri Stóðhestaveislu Rangárhallarinnar síðastliðinn laugardag. Knapi var Þórður sjení Þorgeirsson.

glymur2_je.jpg

Glymur er verðmætur stóðhestur. Hann er afar litfagur, móvindóttur með silfurslegið fax og tagl. Hann gefur um 40% vindótt, 31% móvindótt og 8% jarpvindótt. Gæðin hafa verið augljós frá því hann var sýndur fjögra vetra. Allur gangur frábær. Lundin sömuleiðis.

glymur6_je.jpg

Akkilesarhæll Glyms er hins vegar EINKUNN fyrir fótagerð — 6,5! Að gerð eru fæturnir akkúrat eins og þeir eiga ekki að vera samkvæmt stigunarkvarða kynbótahrossa: Grannir fætur, grannar sinar, lítil sinaskil (engin sinaskil?). Samkvæmt kenningunni eru þetta mjög veikbyggðir og lélegir fætur.

glymur8_je.jpg

Glymur hefur verið notaður til reiðar frá því hann var á fjórða vetur. Hann hefur verið sýndur til afkasta á fjórum kynbótasýningum, auk annarra sýninga. Samkvæmt teoríunni ætti hann að vera orðinn haltur og kvíðinn. En það er öðru nær. Þeir sem sáu Glym á Stóðhestaveislu Rangárhallarinnar geta vitnað um það.

Finna má ýmsar upplýsingar um Glym á slóðinni: http://www.glymur.blog.is/blog/glymur/

 
< Fyrra   Næsta >
 
Seisei.is
Halldór Pétursson